Sýningareintak – Lúxus fatastandur, króm
Sýningareintak – Lúxus fatastandur, króm
Með VSK. 50.468 kr
Án VSK. 40.700 kr
Vörulýsing
Vörulýsing
Vandaður og glæsilegur lúxus fatastandur í sterkri og endingargóðri útfærslu. Standurinn er samanbrjótanlegur og búinn öflugum gúmmíhjólum sem gera auðvelt að færa hann til í verslun, á lager eða á sýningar og viðburði.
Standurinn er bæði hæðar- og breiddarstillanlegur og hentar því vel til að sýna bæði stuttar og langar flíkur. Krómuð áferðin veitir honum glæsilegt og tímalaust útlit sem fellur vel að flestum verslunarumhverfum.
Þessi standur hefur verið notaður í sýningarsal og er því seldur sem sýningareintak. Minni háttar ummerki eftir notkun geta verið á honum.
Upplýsingar:
- Sýningareintak
- Krómuð áferð
- Samanbrjótanlegur
- Sterk gúmmíhjól
- Hæðarstillanlegur
- Breiddarstillanlegur
- Stillanleg breidd: 100–180 cm
- Stillanleg hæð: 145–190 cm

